20.12.1985
Efri deild: 42. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2007 í B-deild Alþingistíðinda. (1721)

Þingfrestun efri deild

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Ég þakka hv. 5. landsk. þm. fyrir hlý orð og góðar óskir í minn garð og fjölskyldu minnar og ég þakka hv. þdm. fyrir að taka undir þær óskir. Ég endurtek bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár til hv. þingdeildarmanna og alls starfsfólks Alþingis. Að svo mæltu segi ég þessum fundi slitið.