21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2094 í B-deild Alþingistíðinda. (1766)
1. mál, fjárlög 1986
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Hæstv. menntmrh. hefur lýst því sem stefnu sinni að byggja þjóðarbókhlöðu á fjórum árum. Þessi till., sem nú er verið að greiða atkvæði um, er till. um að Alþingi staðfesti þá stefnu. Verði þessi till. felld hefur þeirri stefnu menntmrh. verið vísað á bug. Ég segi já.