21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2095 í B-deild Alþingistíðinda. (1772)

1. mál, fjárlög 1986

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Eftir þeim upplýsingum sem ég hef fengið var ekki leitað til fjvn. um framlag til rannsókna á vegum kvenna, til vísindastarfa kvenna, sem mér þykir miður. Ég tel að það hefði verið rétt leið að fara. En því miður treysti ég mér ekki til að greiða atkvæði með þessari till. af skiljanlegum ástæðum og segi því nei.