21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2097 í B-deild Alþingistíðinda. (1782)

1. mál, fjárlög 1986

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Hinn 1. des. 1978 voru laun skert með lögum um 3% og í staðinn komu félagsmálapakkar. Þetta var einn þeirra. Hér er um að ræða breytt fyrirkomulag á greiðslum. Ég styð þetta og segi já.