21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2099 í B-deild Alþingistíðinda. (1785)

1. mál, fjárlög 1986

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Þessi brtt. okkar hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur felur það í sér að Framkvæmdasjóður fatlaðra fái sömu upphæð eða svipaða og Framkvæmdasjóður aldraðra mun fá. Ég treysti því að einhverjir hv. þm. geti stutt þessa till. svo sanngjörn sem hún er. Ég segi já.