21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2100 í B-deild Alþingistíðinda. (1788)

1. mál, fjárlög 1986

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ég vil ekki hafa á móti uppástungu hv. þm. sem hér talaði áðan, en vil þó óska eftir sérstakri atkvæðagreiðslu um 30-101, lið 32, fjármunahreyfingar út, Annað, greitt í ríkissjóð 188 millj., hjá Pósti og síma.