24.10.1985
Efri deild: 9. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í B-deild Alþingistíðinda. (179)

70. mál, kjaradómur í deilu Flugfreyjufélags Íslands og Flugleiða hf.

Árni Johnsen:

Virðulegi forseti. Svo að ekki valdi misskilningi vegna athugasemdar hv. þm. Karls Steinars Guðnasonar í síðustu umræðu kom skýrt fram í mínu máli varðandi ummæli og samtöl við forsvarsmenn flugfreyja í þessum samningamálum að ég mat það svo að þær vildu fremur fá á sig kjaradóm en fara þá leið sem samgrh. bauð upp á. Það voru mín orð.