21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2112 í B-deild Alþingistíðinda. (1836)

Þingfrestun

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt: Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 108. löggjafarþings, frá 21. des. 1985 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 27. jan. 1986.

Gert í Reykjavík, 19. des. 1985.

Vigdís Finnbogadóttir.

Steingrímur Hermannsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Í samræmi við samþykkt Alþingis og það umboð sem forseti Íslands hefur veitt mér lýsi ég því hér með yfir að þessu Alþingi, 108. löggjafarþingi, er frestað hér með, en það verður kvatt saman að nýju í samræmi við bréf forseta Íslands og samþykkt Alþingis eigi síðar en 27. jan. n.k.

Ég vil jafnframt nota tækifærið og óska þm., starfsmönnum Alþingis og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.

1