27.01.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2113 í B-deild Alþingistíðinda. (1837)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Hinn 15. janúar s.l. var gefið út svohljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsrh. að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 27. janúar 1986 kl. 14.00.

Gjört í Reykjavík, 15. janúar 1986.

Vigdís Finnbogadóttir.

Steingrímur Hermannsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Ég vil nota tækifærið og óska hæstv. forseta, hv. alþm. og starfsmönnum Alþingis gleðilegs árs. Ég þakka liðið ár og býð menn velkomna til þingstarfa. Ég læt í ljós þá ósk mína og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.