27.01.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2118 í B-deild Alþingistíðinda. (1847)
Tilkynning frá forsætisráðherra um breytingar á ríkisstjórninni
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Nú er að láta af stjórnmálastörfum, a.m.k. um sinn, sá íslenskur stjórnmálamaður sem hefur einna mesta reynslu allra núlifandi stjórnmálamanna. Hann hefur reynslu sem borgarstjóri, sem ráðherra og sem oddviti í stjórnarandstöðu. Ég vil ekki láta þessum fundi ljúka öðruvísi en svo að þakka hæstv. fyrrv. utanrrh. fyrir gott samstarf og góð kynni þó að við höfum verið á öndverðum meiði í stjórnmálum. Sem forustumaður ríkisstjórnar reyndist hann mér drenglundaður, sanngjarn og heiðarlegur og í samstarfi við hann í stjórnarandstöðu komst ég að raun um hversu yfirgripsmikil þekking hans á efnahagsmálum er. Ég efast um að nokkur stjórnmálamaður á Íslandi búi yfir jafnmikilli þekkingu á efnahagsmálum og hæstv. fyrrv. utanrrh.
Auðvitað hefur hann sætt ámæli eins og allir þeir sem eru í forustu í stjórnmálum. Jafnvel hefur hann frekar sætt ámæli af flokksbræðrum sínum en andstæðingum. Margt sem þar hefur verið sagt er ekki sanngjarnt. Ég þakka Geir Hallgrímssyni samstarfið, óska honum góðs og vil jafnframt óska eftirmanni hans í utanríkisráðherraembætti góðs í starfi því að þó að menn séu andstæðingar í stjórnmálum er ástæðulaust annað en að velfarnaðaróskir Alþingis fylgi þeim í þeim mikilvægu störfum sem þeir gegna.