29.01.1986
Efri deild: 43. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2165 í B-deild Alþingistíðinda. (1872)

203. mál, nafnskráning skuldabréfa

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Ég fagna þessu frv. Hér er hreyft þörfu máli og tekið á því með þeim hætti að ég hygg að minn flokkur geti þar vel við unað, enda bendi ég á að við höfum áður flutt frumvarp í Nd. Alþingis um svipað efni og hér er inn á komið þó það hafi ekki náð fram að ganga.

Ég vildi aðeins koma upp í ræðustólinn til að lýsa yfir stuðningi við meginefni frv. og geta þess um leið að við munum að sjálfsögðu greiða fyrir framgangi þess í samræmi við það að þetta hefur lengi verið áhugamál hjá mínum flokki svo sem sjá hefur mátt í frumvarpsflutningi hans á síðustu árum.