30.01.1986
Sameinað þing: 39. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2189 í B-deild Alþingistíðinda. (1886)

104. mál, endurskoðun gjaldþrotalaga

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Svo stendur á að það eru allmargar vikur liðnar frá því að mál þetta kom til umræðu og var þá lokið framsögu fyrir málinu. En með því að langur tími er liðinn mun 1. flm. þessarar þáltill. innleiða umræðuna á ný í stuttu máli.