16.10.1985
Sameinað þing: 3. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (19)

Tilkynning frá forsætisráðherra um breytingar á ríkisstjórninni

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Með samkomulagi við þingflokkana verður sú tilhögun á þeirri umræðu sem hér fer fram eftir tilkynningu hæstv. forsrh. að hver flokkur á kost á 15 mínútna ræðutíma. Síðar á svo hver flokkur kost á 10 mínútna ræðutíma.