03.02.1986
Efri deild: 44. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2276 í B-deild Alþingistíðinda. (1917)

164. mál, almannatryggingar

Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér ásamt þeim Agli Jónssyni og Árna Johnsen hv. 11. landsk. þm. og hv. þm. Suðurl., að flytja það frv. sem hér er til umræðu um breytingar á lögum um almannatryggingar nr. 67/1971, með síðari breytingum.

Þetta frv. felur í sér félagslegar ráðstafanir sem ætlað er að bæta úr þeim félagslegu ástæðum sem nú heimila skv. lögum fóstureyðingar. Með frv. þessu er lagt til að bætt sé úr þessum félagslegu ástæðum með því að gera breytingar á lögum um almannatryggingar. Hér er um að ræða verulega aukna aðstoð við einstæðar mæður og heimildarákvæði um slíkt hið sama til hjálpar konum sem eru í hjúskap eða í sambúð, en eru hjálpar þurfi. Ég skal nú gera grein fyrir þessu frv.

Í 1. gr. er fjallað um mæðralaun. Þar er kveðið svo á að mæðralaun skuli vera árlega sem þar segir: Með einu barni 50 000 kr. með tveim börnum 75 000 kr. og með þremur börnum eða fleiri 125 000 kr. Hér er um að ræða verulega breytingu frá gildandi lögum og að það er með tvennum hætti.

Í fyrsta lagi eru mæðralaunin stórlega hækkuð frá því sem nú er. Auk þess er breytt hlutföllum á mæðralaunum milli konu með eitt barn og konu með tvö börn og svo konu með þrjú börn eða fleiri, þ.e. hækkunin er mest þegar um eitt barn er að ræða og það er einnig veruleg hækkun þegar um tvö börn er að ræða.

Til glöggvunar skal þess getið að skv. lögum eru mæðralaun nú með einu barni 22 340 kr. á ári. Hér er lagt til að þau verði 50 000 kr. Með tveim börnum eru mæðralaun nú samkvæmt gildandi lögum 58 530 kr. á ári, en hér er lagt til að þau verði 75 000 kr. Samkvæmt gildandi lögum eru mæðralaun með þrem börnum eða fleiri nú 103 817 kr., en hér er gert ráð fyrir að þau verði 125 000 kr.

Ástæður til þess að gerð er tillaga um þessar breytingar eru augljóslega þær að ekki verður með neinum hætti talið að það sé nóg að gert í þessum efnum samkvæmt gildandi lögum. Það sjá menn best með því að líta á þær tölur sem ég hef hér gert grein fyrir, upphæð mæðralaunanna eins og þau eru.

Ég kem þá að öðru atriði sem er að finna í 2. gr. frv. Ég vil segja um það, sem reyndar á við 3. gr. frv. líka, að samkvæmt þeim greinum báðum eru teknar upp nýjar bætur til einstæðra mæðra, nýjar bætur sem nú er ekki fyrir að fara í íslenskri löggjöf. Litið er á að einstæð móðir verður við fæðingu barns oft eða oftast fyrir ákveðinni röskun á stöðu og högum. Ekki er óeðlilegt að hin einstæða móðir njóti aðstoðar til að mæta þessu. Við gerum slíkt í öðrum tilfellum. Við höfum t.d. sérstakan ekkjulífeyri þegar kona missir maka sinn. Það er hugsað til þess að aðstoða konuna vegna þeirrar röskunar á stöðu og högum sem það er fyrir hana að missa eiginmanninn. Af svipuðum ástæðum þykir okkur flm. rétt að veita aðstoð til einstæðrar móður til að bæta henni upp röskun á stöðu og högum sem hún verður fyrir og getur orðið með margvíslegum hætti við barnsfæðingu.

Skv. 2. gr. frv. er ákveðið að þær bætur sem gert er ráð fyrir af þessum ástæðum til einstæðrar móður séu jafnháar og ekkjubætur skv. 1. mgr. 17. gr. almannatryggingalaga. Þessum bótum á ekkja rétt á í sex mánuði. Við gerum ráð fyrir að hin einstæða móðir hafi rétt til bótanna í jafnlangan tíma.

Í 17. gr. almannatryggingalaga er svo í framhaldi af ákvæðum um ekkjubætur, sem ég hef hér vikið að, ákvæði um að ef bótaþegi eigi barn yngra en 17 ára á framfæri sínu eigi hann rétt á bótum í tólf mánuði til viðbótar. Í 3. gr. þessa frv. er mælt svo fyrir að hin einstæða móðir skuli undir þessum kringumstæðum, þ.e. ef barn innan 17 ára er fyrir á framfæri hennar, eiga rétt á hinum sérstöku bótum í tólf mánuði til viðbótar eins og ekkjan.

Í þessu sambandi er rétt að víkja að því hve ekkjulífeyrir getur numið hárri upphæð, en það er mismunandi. Það lægsta er 2757 kr. á mánuði núna, en það getur farið a.m.k. upp í 5514 kr. á mánuði. Það er gert ráð fyrir að hin einstæða móðir geti notið hliðstæðrar aðstoðar eins og ég hef nú gert grein fyrir.

Í 4. gr. þessa frv. sem við nú ræðum er gert ráð fyrir að ný grein komi inn í lög um almannatryggingar þar sem tekin verði upp sérstök heimildarákvæði til aðstoðar í fyrsta lagi við einstæða móður og í öðru lagi við konu í hjúskap eða í sambúð undir vissum kringumstæðum. Hvað varðar konu sem er einstæð móðir er svo kveðið á í 1. mgr. 4. gr. frv. að þegar niður falla bætur þær sem ég hef áður gert grein fyrir og eru skv. 2. og 3. gr. frv. sé tryggingaráði heimilt að greiða einstæðri móður allt að fullum lífeyri einstaklings skv. 11. gr. almannatryggingalaga ásamt tekjutryggingu skv. 19. gr. Hér er sett inn heimildarákvæði sem að sjálfsögðu er ekki gert ráð fyrir að verði notað nema undir vissum aðstæðum, þ.e. sé það nauðsynlegt til aðstoðar við hina einstæðu móður. Hér er vitnað til lífeyris einstaklings skv. 11. gr. laga um almannatryggingar, þ.e. eins og segir í skýringu með frv. að gert er ráð fyrir að upphæð þessara bóta sé sem svarar til þess sem segir í 11. gr., en þar er ákvæði um ellilífeyri. En ellilífeyrinn er mismunandi svo sem kunnugt er eftir því hvort hann er fyrst tekinn við 67 ára aldur eða 75 ára aldur eða einhvers staðar þar á milli.

Það er ekki ástæða að mínu viti til að kveða nánar á um hve upphæðin á að vera há. Samkvæmt heimildarákvæðum 1. mgr. 4. gr. frv. hefur tryggingaráð í hendi sér að meta það. En þó þykir mér líklegt, þar sem um heimildarákvæði er að ræða, að þetta muni ekki fara yfir lægsta flokk ellilauna, þ.e. ef miðað er við að ellilaunin séu fyrst tekin við 67 ára aldur. Það er veruleg upphæð samt á ári eða a.m.k. um 5514 kr. á mánuði og til viðbótar því kemur svo tekjutryggingin sem nemur í dag 8080 kr. á mánuði. En með því að þetta er heimildarákvæði er að sjálfsögðu í valdi tryggingaráðs að meta hve upphæð þessi yrði há í einstöku tilfelli.

Allt sem ég hef sagt fram að þessu varðar bætta aðstoð við einstæðar mæður, en frv. þetta sem við nú ræðum gerir ráð fyrir að það geti verið að fleiri séu aðstoðar þurfi í þessu efni en einstæðar mæður. Það getur verið að svo sé ástatt um konu í hjúskap eða í sambúð. Þess vegna gerir 2. mgr. 4. gr. frv. ráð fyrir að tryggingaráð fái heimild til að ákveða greiðslu til kvenna í hjúskap eða í sambúð, sams konar greiðslur og gert er ráð fyrir til einstæðra mæðra, en ekki skilyrðislaust. Þetta verði bundið því skilyrði að tekjur hjónanna eða sambúðarfólksins fari ekki fram úr ákveðnu marki og auk þess að ástand á heimilum þessara mæðra sé það slæmt að það jafngildi þeim ástæðum sem samkvæmt gildandi lögum heimila fóstureyðingu. Þetta er tekið skýrt fram í 4. gr. frv. því að þar segir að þessar bætur komi aðeins til að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

1. Hafi kona alið mörg börn með stuttu millibili og skammt er liðið frá síðasta barnsburði.

2. Eigi kona við að búa bágar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis annarra á heimilinu.

3. Vegna annarra ástæðna sem eru sambærilegar við ofangreindar ástæður.

Þetta ákvæði er orðrétt upp úr gildandi lögum, orðrétt tilteknar þær ástæður sem geta heimilað fóstureyðingu. Þetta frv. er raunar byggt á þeirri forsendu að ekki sé eðlilegt að fóstri sé eytt af félagslegum ástæðum, það eitt sé eðlilegt að leysa og bæta úr hinum félagslega vanda.

Hæstv. forseti. Þetta frv. er flutt í framhaldi, ef svo mætti segja, af því frv. sem við sömu flm. höfum flutt um breytingar á lögum sem fjalla um fóstureyðingar og við höfum nýlokið að ræða við 1. umr. Í því frv. er lagt til að félagslegar ástæður geti ekki heimilað fóstureyðingar. Ég flutti framsögu fyrir því máli og lagði þá áherslu á það sjónarmið að þjóðfélaginu bæri að leysa þessar þjóðfélagslegu ástæður með öðrum hætti en að gripið væri til fóstureyðinga. Þarf ekki að ítreka þetta sjónarmið svo skammt sem nú er liðið frá því ég flutti framsögu fyrir hinu frv. En þetta frv., sem við nú ræðum, er flutt í framhaldi af hinu fyrra frv. um fóstureyðingar og til að árétta þetta sjónarmið.

Þetta frv., sem felur í sér tilteknar breytingar á tryggingalöggjöfinni, er að mínu viti um það sem mest er um vert að gert sé og á heima í lögum um almannatryggingar. Ég veit að það geta verið ýmsir aðrir erfiðleikar fyrir hendi sem þetta frv. nær ekki til. En ég tel að þetta frv. geti verið þýðingarmikið spor í þá átt að þjóðfélagið taki á sig þá skyldu að aðstoða hinar einstæðu mæður í staðinn fyrir að hlaupa frá þessum skyldum með því að heimila fóstureyðingar af félagslegum ástæðum.

Við munum aldrei - já, ég segi óhikað aldrei þó að mér hafi komið til hugar að segja seint, en ég hygg að það sé óhætt að segja að við munum aldrei hafa það ástand í þessu landi í félagslegum efnum að ekki sé alltaf hægt að finna einhverja erfiðleika sem ekki verður séð við í löggjöf. En við erum á mikilli framfaraleið í þessum efnum. Það höfum við verið á síðustu árum og síðustu áratugum. Við erum alltaf að bæta okkur í þessu efni. En það yrði enn þá aukin hvatning ef nú yrði fellt úr lögum að félagslegar ástæður gætu heimilað fóstureyðingu. Samkvæmt því sem ég hef lagt til ásamt meðflm. mínum í því frv. sem við höfum hér flutt á að afnema skilyrðislaust félagslegar ástæður sem heimild fyrir fóstureyðingu.

Þrátt fyrir mikilvægi hinna félagslegu ástæðna, sem ég legg mikla áherslu á að bæta úr, er ástæðan fyrir því að ekki eigi að leyfa fóstureyðingar af félagslegum ástæðum fyrst og fremst siðferðileg. Við skulum og hafa í huga að umhyggja fyrir barni sem fæðist í þennan heim fer ekki alltaf eftir ríkidæmi eða því hve félagsmálalöggjöfin er fullkomin. Það hafa margir orðið góðir þegnar sem alist hafa upp við þröngan kost á sama hátt sem jafnvel ríkidæmi er engin trygging í þessu efni. Ég vil, þó að ég leggi mikla áherslu á hinar miklu félagslegu umbætur, einnig leggja áherslu á þessi víðtækari sjónarmið sem við verðum einnig að hafa í huga.

Ég leyfi mér að vænta þess, hæstv. forseti, að bæði frv. um fóstureyðingar, það sem við höfum áður rætt um og frv. sem við nú ræðum, fái afgreiðslu á þessu þingi. Ég þarf ekki að leggja frekari áherslu en ég hef þegar gert - bæði í þessum umræðum og umræðunni um hið fyrra frv. varðandi fóstureyðingar - á mikilvægi þessa máls. Og ég vænti þess að þessi hv. deild beri gæfu til að afgreiða þetta frv. á jákvæðan hátt.

Að lokinni þessari umræðu vil ég leyfa mér, hæstv. forseti, að óska þess að frv. þessu verði vísað til heilbr.og trn.