04.02.1986
Sameinað þing: 40. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2309 í B-deild Alþingistíðinda. (1946)
227. mál, skipun formanns stjórnar Ferðamálaráðs
Samgrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Ég veit ekki við hvern hv. fyrirspyrjandi á þegar hann segist hafa hringt og beðið um upplýsingar um þessa skipan því að ráðuneytisstjóri, skrifstofustjóri ráðuneytis, ég og fleiri í samgrn. vissu þessa skipan daginn áður. Ég geri ekki ráð fyrir því að því hefði verið haldið neitt leyndu ef spurt hefði verið um það í samgrn. Stjórn Ferðamálasjóðs var starfandi út s.l. ár svo að hér er ekki um langt tímabil að ræða. En ég get vel skilið að þeir sem eiga að taka við einhverjum störfum vilji fá glöggar upplýsingar um hvernig mál standa áður en þeir taka við skipan.