04.02.1986
Sameinað þing: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2325 í B-deild Alþingistíðinda. (1952)

Leiga á flugvél Landhelgisgæslunnar

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Farið hefur verið fram á umræðu utan dagskrár um leigu á Fokkerflugvél Landhelgisgæslunnar. Það verður orðið við þessari ósk og umræðan fer fram skv. 1. mgr. 32. gr. þingskapa.