04.02.1986
Sameinað þing: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2334 í B-deild Alþingistíðinda. (1967)

Leiga á flugvél Landhelgisgæslunnar

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Vegna orða hv. síðasta ræðumanns um að það sé fjarstæða að jafna saman skoðun og þeim tíma sem vélin væri bundin er það alveg rétt að skoðun tekur miklu lengri tíma en þetta.

Ég get ekki svarað í mínútum því sem hv. 3. þm. Vestf. spurði um, hvað tekur langan tíma að kalla vélina til baka en vegna hinnar spurningar hans um hvert framhaldið verði á þessu mun ég að sjálfsögðu taka til athugunar þær ábendingar sem hér hafa komið fram og ákvörðun verður tekin í ljósi þess.