29.10.1985
Sameinað þing: 8. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (207)

40. mál, erfðalög

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Á 106. og 107. löggjafarþingi fluttum við hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson, Kristín Kvaran, síðar Guðmundur Einarsson, Guðrún Agnarsdóttir og Jón Baldvin Hannibalsson frv. til l. um breytingu á erfðalögum sem gerði ráð fyrir skilyrðislausri heimild eftirlifandi maka til að sitja í óskiptu búi að því er tók til íbúðarhúsnæðis og húsmuna.

Mál þetta hlaut verulega umfjöllun í þinginu og lyktaði á síðasta þingi með lagabreytingu sem hv. allshn. varð sammála um að leggja til. Sú lagabreyting felur það í sér að annað hjóna eða bæði geta ávallt mælt svo fyrir í erfðaskrá að það þeirra sem lengur lifir skuli hafa heimild til að sitja í óskiptu búi með niðjum beggja, hvort sem þeir eru fjárráða eða ófjárráða.

Sá áhugi sem þessu máli var sýndur meðan á meðförum þingsins stóð bar því vitni að margir teldu sig eiga hagsmuna að gæta yrði sú lagabreyting gerð að ekki þyrfti leyfi barna til setu í óskiptu búi. Því miður þarf enn leyfi stjúpbarna, en ekki var ráð fyrir því gert í hinu upphaflega frv.

Hitt er ljóst að mikilvægt er að fólk noti sér þá heimild sem fékkst með lagabreytingunni, en til þess þarf að gera erfðaskrá eða láta búa út yfirlýsingu um vilja hvors hjóna um sig til að sá makinn sem lengur lifir geti setið í óskiptu búi. En til þess þarf að upplýsa menn um þessa heimild og hvernig fólk skuli bera sig að við að ganga frá slíkum málum. Það er tvímælalaust allra hagur, einnig þeirra sem við skiptarétt vinna, að frá sem allra flestum erfðamálum sé tryggilega gengið. Ég tel því dómsmrn. bera skyldu til að kynna fólki þennan nýfengna rétt til setu í óskiptu búi og auðvelda fólki sem mest að nýta sér hann.

Ég hef þess vegna leyft mér að varpa fram þeirri fsp. til hæstv. dómsmrh. sem hér er að finna á þskj. 40 og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Hvað hefur verið gert, eða er áætlað að gera, til þess að kynna fólki þau réttindi til setu í óskiptu búi sem fengust með lögum nr. 29/1985?"