29.10.1985
Sameinað þing: 8. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í B-deild Alþingistíðinda. (218)
51. mál, Sjóefnavinnslan á Reykjanesi
Fyrirspyrjandi (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Í Sjóefnavinnslunni á Reykjanesi eru talsverðir fjármunir bundnir svo ekki sé kveðið fastar að orði. Rekstur hefur fram undir þetta ekki skilað verulegum árangri í peningum talið. Ég hef áður á þessum stað gagnrýnt ýmislegt sem varðar Sjóefnavinnsluna, en þó fyrst og fremst óskað eftir því að Alþingi fengi sem gleggst að fylgjast með því hvaða fjármunir hér væru í húfi, hvernig þeim væri varið og hverjar horfurnar væru.
Þess er skemmst að minnast að á síðasta þingi fóru fram allítarlegar umræður um þetta efni. Þær gerðust í sambandi við umræðu um skýrslu um þetta mál, sem ég ásamt ýmsum öðrum þm. óskaði eftir að unnin yrði. Ég var ekki alls kostar sáttur við þá skýrslu, en hún varpaði þó nokkru ljósi á málið.
Ég tel sem sagt, herra forseti, að það sé nauðsynlegt að Alþingi fylgist með þessu máli. Þess vegna hef ég hér borið fram fsp. í sex liðum varðandi stöðu málsins nú.
Það er kunnugt að hæstv. þáv. iðnrh., Sverrir Hermannsson, fól rektor Háskólans, Sigmundi Guðbjarnasyni, að hafa forustu um úttekt á stöðu og rekstrarhorfum Sjóefnavinnslunnar. Með þá ákvörðun iðnrh. var ég fyrir mína parta mjög ánægður vegna þess að ég taldi einmitt að nauðsyn bæri til að slík athugun færi fram og hún væri tekin nýjum tökum af nýjum mönnum.
Þess vegna spyr ég í fyrsta lagi um hvernig þessari úttekt miði.
Í öðru lagi hvort aðrar athuganir hafi verið gerðar.
Í þriðja lagi hvaða ákvarðanir hafi verið teknar um framtíð fyrirtækisins, uppbyggingu eða fjárfestingu frá því að sú skýrsla, sem ég vék að hér áðan um fyrirtækið, var til umræðu.
Í fjórða lagi vil ég fá upplýst hverjar séu nú eignir og skuldir fyrirtækisins og hvað sé áætlað að þær verði um næstu áramót.
Í fimmta lagi vil ég einnig fá upplýsingar um rekstrarárangur fyrirtækisins á fyrstu 7-8 mánuðum þessa árs, þar á meðal um tekjur af sölu afurða og heildarrekstrarkostnað.
Í sjötta lagi hverjar séu rekstraráætlanirnar fyrir næsta ár, sundurliðaðar á helstu þætti.