18.02.1986
Sameinað þing: 49. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2611 í B-deild Alþingistíðinda. (2221)

Um þingsköp

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vil taka undir orð hv. 3. þm. Reykv. um að úrskurður forseta um utandagskrárumræður nú er réttur og ber vott um röggsemi hans og réttan skilning á þeim þingsköpum sem við höfum nýlega sett.