20.02.1986
Sameinað þing: 50. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2695 í B-deild Alþingistíðinda. (2299)
Tölvukaup fyrir grunnskóla
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Það er vissulega eðlilegt að eftir því sé grennslast hvað valdi því að ekki hefur verið haldið fram þeirri stefnu sem fyrrv. hæstv. menntmrh. virtist hafa í þessum efnum í sambandi við kaup á tölvum til grunnskólanna þannig að hægt væri að taka myndarlega á í þessum þýðingarmikla þætti.
Ég hef ekki kynnt mér efnisþætti þessa máls sérstaklega og vil ekki leggja dóm á það hér hvort eðlilega sé að staðið með því að doka nú við eins og hæstv. ráðherra hefur gefið um. Hitt þykir mér ekkert óeðlilegt að menn skoði sinn gang ef um það er að ræða að afla slíkra tækja fyrir grunnskóla landsins í heild og gæti þess að þar sé aflað tækja sem líklegt er að hentað geti fyrir þá fræðslu sem um er að ræða án þess að farið sé í óþarflega mikinn tilkostnað. Á fáum sviðum er þróunin örari en þessum. Það er vissulega rétt, sem hv. málshefjandi sagði, að við höfum ekki efni á því að bíða lengi eftir því að hægt sé að taka á þessum málum svo sem eðlilegt er innan grunnskólanna. Ég vænti þess að það sé ekki í hug hæstv. menntmrh. að svo verði og skildi út af fyrir sig ekki hans mál þannig.
Það er einnig grundvallaratriði, sem hæstv. ráðh. vék að, að kennarar verði í færum að sinna þeirri fræðslu sem þarna er um að ræða, verði ekki langt á eftir nemendunum eins og gæti nú gerst og kannske er til staðar hjá þeim sem eldri eru a.m.k. og skiptir það mjög miklu máli.
Ég bendi á í þessu samhengi að hér er einmitt svið sem eðlilegt er að tekið verði upp úti í landshlutunum, þ.e. að mennta starfandi kennara í að fást við kennslu í tölvufræðum, hafa námskeið úti í landshlutunum og gera þau aðgengileg starfandi kennurum þannig að menn þurfi ekki að leita þessarar fræðslu, grunnmenntunar á þessu sviði, hingað suður til Reykjavíkur eingöngu þó að eðlilegt sé að Kennaraháskólinn hafi forgöngu og annist samræmingu í sambandi við þessi efni.
Ég orðlengi þetta ekki frekar, herra forseti, en hvet til þess að menn taki þarna á og taki ákvarðanir sem fyrst, skynsamlegar ákvarðanir, þannig að unnt verði að sinna þessum fræðsluþætti svo sem brýnt er fyrr en seinna.