20.02.1986
Sameinað þing: 50. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2697 í B-deild Alþingistíðinda. (2302)
Tölvukaup fyrir grunnskóla
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég vildi taka undir orð hv. síðasta ræðumanns, 3. þm. Reykn. Það er mikil spurning um hvort hæstv. menntmrh. kýs að reyna að hafa áhrif á þessa þróun. Þetta er spurning um læsi, þetta er spurning um hvort við höfum efni á að beita ekki jöfnuði á nokkra árganga barna og unglinga sem eiga að erfa þetta land. Þeim mun fyrr sem þau ná þessari læsi, þeim mun betur geta þau beitt sér. Ef ég man rétt var hv. málshefjandi að geta þess að tölvur væru á tíunda hverju heimili. (EG: Miklu meira.) Já, en hvað með þau heimili sem ekki hafa tölvur? Þetta er spurning um jöfnuð.
Og ég tek undir það sem hv. 3. þm. Reykn. sagði. Þetta er mjög ör þróun og það verður þar bylting eftir byltingu. Við getum ekki beðið eftir því að ná fullkomnuninni vegna þess að málin eru í svo hraðri þróun. Þess vegna vil ég leggja áherslu á og hvetja hæstv. menntmrh. til að endurskoða hug sinn um þessi mál.