25.02.1986
Sameinað þing: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2749 í B-deild Alþingistíðinda. (2342)
255. mál, kostnaður af starfsemi Krabbameinsfélags Íslands
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Mér finnst ástæða til að benda hæstv. ráðh. á að það kostar nú konu 600 kr. að fara í krabbameinsleit. Það þýðir að iðnverkakona er sex klukkutíma að vinna fyrir því gjaldi sem þar er krafist eða nær allan daginn. Það eru um það bil 3/4 af vinnudegi hennar sem slík skoðun kostar. Svo er nú komið kjörum íslenskra kvenna og það verður varla til framdráttar því að sem allra flestar konur mæti til slíkrar skoðunar.