27.02.1986
Sameinað þing: 53. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2829 í B-deild Alþingistíðinda. (2402)

Kjarasamningar

Forseti (Helgi Seljan):

Ég hlýt að vekja á því sérstaka athygli að nú er liðinn u.þ.b. helmingur þess tíma sem við höfðum hugsað okkur til þessarar utandagskrárumræðu. Og til þess að allra sjónarmið næðu nú hér fram í þessari umræðu þá minni ég á þetta, en aðeins þrír hafa nú talað og á mælendaskrá eru fimm.