04.03.1986
Sameinað þing: 54. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2956 í B-deild Alþingistíðinda. (2475)
294. mál, fullvirðisréttur í landbúnaðarframleiðslu næstu verðlagsár
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Það voru nú fleiri en Alþb. sem gagnrýndu hvernig að lagasetningu um búvöruframleiðslu o.fl. var staðið hér á s.l. vori og engin ástæða fyrir okkur að iðrast þeirra varnaðarorða sem þá voru lögð inn því að þau hafa sannarlega ræst á yfirstandandi verðlagsári og bændur eru nú að súpa seyðið af því hvernig að þeim málum var staðið.
Ég rifja það upp að ekkert hefur verið gert af hálfu forustumanna landbúnaðarins og ráðuneytis til að hamla gegn þeirri aukningu á mjólkurframleiðslu sem var í gangi fyrri hluta verðlagsársins áður en reglugerð hæstv. ráðh. var sett.
Og svo aðeins þetta: Það er athyglisvert að hæstv. ráðh. tekur ekki meira mark á framtíðarspádómum nefndar á vegum forsrn. Það kann að vera að það sé unnið út í vindinn í sambandi við þau nefndarstörf. Þar er mikill flokkur manna að starfi, að ég hygg, og við heyrðum álit hæstv. landbrh. á því. Ég vona sannarlega að það gangi ekki eftir sem þar hefur verið sagt í sambandi við sauðfjárframleiðsluna, en það er full ástæða fyrir forráðamenn, finnst mér, að hyggja að þeim vanda sem þarna getur verið í uppsiglingu.