05.03.1986
Neðri deild: 58. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2987 í B-deild Alþingistíðinda. (2506)

Um þingsköp

Forseti (Ingvar Gíslason):

Það hefur komið fram skýring af hálfu hæstv. samgrh. varðandi meðferðina á þessu máli og forseti vill taka það fram fyrir sitt leyti að það hefur ekki staðið á því af hans hálfu að taka þetta mál fyrir ef sá ráðherra sem fyrir því mælir er við því búinn. En við skulum vona að það líði ekki mjög langur tími áður en þetta mál verður tekið fyrir.

En þess er ekki kostur að taka fyrir fleiri mál á þessum fundi.