10.03.1986
Neðri deild: 62. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3033 í B-deild Alþingistíðinda. (2587)

321. mál, tollskrá

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til að beina því eindregið til hæstv. fjmrh. að hann vindi að því bráðan bug að gera upp hug sinn um hvernig hann hyggist framkvæma tollaívilnanir eða hliðstæðar aðgerðir gagnvart öryrkjum þannig að þingið geti sem allra fyrst fengið að sjá hvernig framkvæmdin verði í þeim efnum.