10.03.1986
Neðri deild: 62. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3033 í B-deild Alþingistíðinda. (2588)

321. mál, tollskrá

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Eins og fram kom í ræðu hv. síðasta ræðumanns var hann fjarverandi þegar hæstv. fjmrh. tók hér til máls við lok 2. umr., en hann hafði einmitt lýst því yfir, hæstv. ráðherra, að það yrði gert sem hann fór fram á, hv. þm.