11.03.1986
Sameinað þing: 57. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3038 í B-deild Alþingistíðinda. (2596)
223. mál, staða lektors í íslenskum bókmenntum
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Í sambandi við stöðuveitingar geta vissulega verið álitamál. Mér sýnist hins vegar að hæstv. menntmrh. hafi í sambandi við umrædda stöðuveitingu gengið gegn sjónarmiðum meiri hluta aðila sem veita umsögn um þetta á vegum Háskóla Íslands. Það eru einkennilegar röksemdir sem við fáum hér um það að sú kona sem sótti um þetta starf hafi verið að lækka sig launalega eins og það væri ekki hennar mál hvort hún óskáði eftir slíku. Þau rök eru veik.
Ég kveð mér hljóðs, herra forseti, til að benda hæstv. menntmrh. á að í 4. gr. þess samnings sem Alþingi hefur staðfest „um afnám mismununar gagnvart konum“ er tekið skýrt fram að gera skuli „sérstakar bráðabirgðaráðstafanir“, og það er orðrétt tilvitnun, „sem miða að því að flýta fyrir að raunverulegt jafnrétti karla og kvenna náist“ og það með svonefndri „jákvæðri mismunun“. Þannig er í þessum samningi að finna slík ákvæði.
Það hefði kannske verið ástæða til að spyrja hæstv. félmrh. um álit hans á þessum efnum því að undir hann heyrir jafnréttislöggjöfin. Þar er ekkert sem segir til um að jákvæðri mismunun sé hafnað.