30.10.1985
Neðri deild: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í B-deild Alþingistíðinda. (261)
16. mál, húsnæðissparnaðarreikningar
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Aðeins nokkur orð um þetta mál í tilefni af ræðu hv. 2. þm. Norðurl. e. Hann talaði um gamlar hugmyndir, þær hugmyndir að hver maður skyldi eignast sitt húsnæði. Það er rétt, þetta er gömul hugmynd og hefur verið draumur margra. En þessi hugmynd er á góðri leið með að verða úrelt, ekki síst vegna þess að þeir sem hafa farið þessa leið eru óðum að sligast vegna þess að þessi hugmynd kaffærir venjulegar fjölskyldur í því þjóðfélagi sem við búum í í dag.
Tímarnir breytast og mennirnir með. Það koma nýjar hugmyndir með nýjum tímum. Ein þessara nýju hugmynda er einmitt sú hugmynd sem býr að baki búsetahreyfingunni og er í því fólgin að menn velja sér það hlutskipti að eiga leiguaðild eða forgangsrétt að leiguaðild að íbúð í stað þess að eignast hana á hefðbundinn hátt. Þetta er ekki endilega bara gamalt fólk, öryrkjar, námsmenn, einhverjir þeir sem minna mega sín þó að ég sé fyllilega sammála hv. þm. Halldóri Blöndal, að okkur beri að greiða götu þeirra sem minna mega sín og styðja þá á alla lund. Við verðum líka að hafa vit til þess að koma auga á nýjar hugmyndir og möguleika þeirra og gæði og hafa vit á því að styðja þær. Vegna þess að hv. þm. minntist á Oliver Lodge og framhaldslíf, þá langar mig hreinlega til að spyrja hann: Ætlar hann þessari hugmynd, ætlar hann búsetahreyfingunni framhaldslíf í einhverju formi með einhverjum stuðningi eða ekki?