11.03.1986
Sameinað þing: 57. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3050 í B-deild Alþingistíðinda. (2614)
310. mál, störf milliþinganefndar um húsnæðismál
Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Á s.l. vori fóru fram að beiðni stjórnarandstöðunnar viðræður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um það neyðarástand sem þá ríkti í húsnæðismálum. Ein af þeim mörgu tillögum sem stjórnarandstaðan sameinaðist um og bar fram til úrlausnar á þeim vanda var að skipuð skyldi milliþinganefnd allra þingflokka sem hefði það hlutverk að endurskoða allt húsnæðislánakerfið, þ.e. lánakerfi opinberra aðila, banka og lífeyrissjóða. Nefndinni var ætlað að gera tillögur um nýja húsnæðisstefnu og um húsnæðisáætlun til aldamóta. Þessi áætlun var byggð á þeirri meginforsendu að húsnæði er mannréttindakrafa en á ekki að vera efni pólitískra átaka á fárra ára fresti.
Ríkisstj. féllst á þessa tillögu stjórnarandstöðunnar og skipaði nefnd þann 11. júlí. Hlutverk hennar skv. skipunarbréfi var að gera tillögur um nýtt húsnæðislánakerfi, sbr. meðfylgjandi ljósrit af bréfi hæstv. félmrh. til þingflokkanna, en þar kom fram m.a., með leyfi forseta: „Er hægt að draga þá ályktun að allir flokkar virðast sammála um að bæta húsnæðislánakerfið með það meginmarkmið að tryggja fólki húsnæði við hóflegu verði án þess að einstaklingar og fjölskyldur þurfi að leggja á sig varanlegt ok vinnu og skuldaklafa til að komast yfir húsnæði umfram það sem þekkist í nágrannalöndum okkar?"
Sömuleiðis kom reyndar fram í bréfi til formanns þessarar nefndar að félmrh. hafði ákveðið að nefnd um húsnæðismál „sem nýtur formennsku yðar“, eins og segir í bréfinu, með leyfi forseta, „geri einnig tillögu um ráðstöfun á því fé sem aflað verður á árinu 1986 með stoð í áðurgreindum lögum.“ Þar er vitnað í lög sem samþykkt voru á þinginu s.l. vor.
Nefndin hefur nú lokið umtalsverðri vinnu og setti fram tillögur þann 7. desember s.l. um ráðstöfun þeirra 200 millj. kr. sem átti að verja sérstaklega til þeirra sem orðið hafa fyrir sérstökum áföllum vegna efnahagsráðstafana ríkisstj. Þessar tillögur fólu m.a. í sér að aðaláherslan skyldi lögð á skuldbreytingu skammtímalána hjá bönkum og sparisjóðum.
Nú hefur milliþinganefndin ekkert fundað síðan í janúarlok. Á síðustu vikum hafa verið reifaðar hugmyndir og teknar víðtækar ákvarðanir um breytingar á húsnæðismálum án þess að milliþinganefndin hafi átt þar nokkurn hlut að máli eða átt þess kost að fylgjast með framvindu þeirra mála. Spurning mín er áður en ég ber fram fsp.: Kom félmrn. eitthvað þar við sögu eða var líka gengið fram hjá þeim og upp í Garðastræti?
Fsp. sem ég ber fram til hæstv. félmrh. um störf milliþinganefndarinnar er: „Hvernig miðar störfum milliþinganefndar um húsnæðismál sem skipuð var 11. júlí 1985? Og hvenær er áætlað að hún ljúki störfum?"