17.03.1986
Neðri deild: 64. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3127 í B-deild Alþingistíðinda. (2692)

Um þingsköp

Forseti (Karvel Pálmason):

Út af ummælum hv. 5. þm. Austurl. skal ég ekki upplýsa um vilja hæstv. ríkisstj. í þessum efnum, en ég minnist þess að hv. 5. þm. Austurl. átti tal um þetta mál hér ekki alls fyrir löngu og innti eftir því. Aðalforseti er ekki mættur, en mun koma bráðlega í þinghúsið, það ég best veit, og þessum skilaboðum skal komið til hans.