17.03.1986
Neðri deild: 64. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3137 í B-deild Alþingistíðinda. (2702)

54. mál, sveitarstjórnarlög

Karvel Pálmason:

Já, stutt skal hún vera. Er það virkilega svo að hv. 5. þm. Vestf. ætli ekki að láta oss heyra hvaða boðskap hann flytur að því er þetta varðar? Ég hygg að það sé engin leynd sem þar fari fram. Ég ítreka enn að ég vil gjarnan fá skoðun hv. 5. þm. Vestf. á málinu sem heild, og hver viðbrögð hafa orðið í hans þingflokki að því er varðar það frv. sem hann hefur lagt hér fram á Alþingi.