17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3149 í B-deild Alþingistíðinda. (2730)

270. mál, friðarár Sameinuðu þjóðanna 1986

Menntmrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Mér er alveg ókunnugt um það sem hv. 10. landsk. þm. spurðist fyrir um. Enginn hefur leitað leyfis míns til dreifingar bæklinga í skólum, enda geri ég fastlega ráð fyrir að það sé á valdi skólayfirvalda í hverjum skóla hvort slíkt er leyft eða ekki.