17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3170 í B-deild Alþingistíðinda. (2761)

290. mál, verðbætur á innlán og útlán banka

Fyrirspyrjandi (Stefán Benediktsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Þau voru mér, eins og ég held honum, fullkomlega óskiljanleg og þau svöruðu ekki að nokkru leyti því sem spurt var um þannig að ég held að við verðum að bíða einhvers seinni tíma til þess að fá svör við þeirri spurningu sem var lögð fram.