17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3176 í B-deild Alþingistíðinda. (2777)

326. mál, framleiðsla bæti- og matarefna úr mjólk

Fyrirspyrjandi (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Út af ummælum hæstv. landbrh. áðan varðandi samvinnu og samstarf við erlenda aðila vil ég taka fram að ég hef ekkert á móti slíku samstarfi nema síður sé og tel að það komi ævinlega til álita hjá okkur þegar við þurfum á því að halda og höfum af því gagn. Ég vona að því sé eins farið með hæstv. ráðh. að hann óttist það ekki heldur nýti sér það eftir því sem á þarf að halda.

Í annan stað vil ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir svörin og óska báðum ráðherrunum og þeim stofnunum sem undir þá heyra góðs gengis í því að skoða þetta mál og finna lausn.