31.10.1985
Sameinað þing: 10. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í B-deild Alþingistíðinda. (288)

10. mál, nefnd til að kanna rekstur Innkaupastofnunar ríkisins

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Í tilefni af orðum hv. 10. landsk. þm. viðurkenni ég að hafa kannske í hvatvísi minni verið einum of harðorður eða tekið einum of djúpt í árinni hvað þessu atriði viðvíkur og biðst þá afsökunar á því að hafa þarna gengið eilítið út fyrir velsæmið.