24.03.1986
Neðri deild: 67. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3284 í B-deild Alþingistíðinda. (2881)
372. mál, vinnudeila Mjólkurfræðingafélags Íslands
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Það hefur verið vikið að því af hv. ræðumönnum að ég hafi ekki gert neina grein fyrir því hvernig stæði á því að ekki náðist samkomulag milli Mjólkurfræðingafélagsins og vinnuveitenda. Ég sagði að sú krafa mjólkurfræðinga sem síðast hefði verið til umræðu fæli í sér eftir upplýsingum ríkissáttasemjara 4-5% umfram gerða samninga. Það má vissulega deila um hvað er veruleg launahækkun og kannske er það orðið svo að við teljum slíkt ekki mikinn mismun á milli stétta, en miðað við aðstæður og þann samning sem gerður var nú er það vissulega æði stór hluti þar sem það er svipað og sú almenna kauphækkun sem samið var um núna að kæmi 1. mars, þ.e. tvöföldun á henni.
En hv. 4. þm. Norðurl. e. spurði hvað 4. gr. merkti. Hún merkir að sjálfsögðu að það er ekki heimilt að hefja verkfall til að knýja fram breytingar á þeirri niðurstöðu sem kjaradómurinn kemst að þegar hann hefur verið kveðinn upp, á meðan á samningstíma hins almenna kjarasamnings stendur.