25.03.1986
Sameinað þing: 64. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3317 í B-deild Alþingistíðinda. (2928)

283. mál, sláturhús á Fagurhólsmýri

Helgi Seljan:

Herra forseti. Ég vil aðeins upplýsa það út af því sem kom fram í máli hv. 11. landsk. þm. að ég hygg að stjórn Kaupfélags Austur-Skaftfellinga, sláturleyfishafans í þessu tilfelli, sé á fundi einmitt þessa stundina að fjalla um þetta mál og kanna það alveg sérstaklega hvort möguleiki sé á því að framkvæma ákveðnar endurbætur á sláturhúsinu í Öræfum til þess að unnt sé að slátra þar áfram. Þessar upplýsingar hef ég einmitt beint frá oddvita Hofshrepps og veit að það er ákveðinn vilji fyrir því hjá þessum sláturleyfishafa að kanna það hvort ekki er hægt með nauðsynlegustu endurbótum að fá áframhaldandi leyfi til slátrunar þar