25.03.1986
Sameinað þing: 64. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3318 í B-deild Alþingistíðinda. (2929)

283. mál, sláturhús á Fagurhólsmýri

Jón Kristjánsson:

Herra forseti. Aðeins örfá orð um þetta mál. Ég tek undir það sem hér hefur komið fram að það er nauðsynlegt að fá niðurstöðu í þessu máli. Þessi starfsemi er mikilvæg fyrir Öræfinga og hefur verið gildur þáttur þar í atvinnulífinu. En ég get fullyrt það að að þessum málum er unnið, að fá lausn á þeim. Ég hef rætt þessi mál við oddvita Hofshrepps, um síðustu helgi þegar ég var þarna austur frá, og ég fullyrði að allir aðilar þessa máls vinna að því að fá lausn á því og þarna verður ekki flanað að neinu.