25.03.1986
Sameinað þing: 64. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3322 í B-deild Alþingistíðinda. (2935)

352. mál, Greiningar og ráðgjafastöð ríkisins

Fyrirspyrjandi (Jóhanna Leópoldsdóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir svör hans. Af svari hans er ljóst að allt of mörg börn bíða þjónustu greiningarstöðvarinnar í Kjarvalshúsi og allt of lengi. Ég vil því leyfa mér að vona að verulegt átak verði gert í að bæta aðstöðu þessa hóps. Eins og reyndar kom fram í svari félmrh. verður sérstaklega gætt að þörfum þessa hóps í fjárlagagerð næsta árs.