01.04.1986
Sameinað þing: 66. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3362 í B-deild Alþingistíðinda. (3001)
Um þingsköp
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Þessi fyrirspurnatími er nú orðinn nokkuð vandmeðfarinn. Þannig er að ráðherrar tíðka það hver af öðrum að veitast að þm., fyrirspyrjendum, í máli sínu eða einstökum þm. sem gera örstuttar athugasemdir. Síðan eiga þm. ekki kost á því að svara fyrir sig, eins og hefur komið fyrir tvisvar í dag. Ég held að það sé lágmark, ef það á að halda þessum fyrirspurnatímum áfram með þeim hætti sem reynt hefur verið í vetur samkvæmt hinum nýju þingsköpum, að hæstv. ráðherrar séu settir inn í þá breytingu sem gerð hefur verið á lögunum um þingsköp Alþingis Íslendinga. Vinnubrögðin eins og þau hafa tíðkast að undanförnu af hálfu hæstv. ráðherra eru óþolandi og staðan sem hæstv. forseti er settur í í þessum fyrirspurnatímum er vægast sagt mjög óþægileg aftur og aftur.