07.04.1986
Efri deild: 70. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3471 í B-deild Alþingistíðinda. (3105)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf, dags. 7. apríl 1986:

„Þar sem Albert Guðmundsson 1. þm. Reykv. er erlendis í opinberum erindum og getur ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans ósk með tilvísun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis, þar sem 1. varamaður getur ekki tekið sæti og 2. varamaður situr á Alþingi, að óska þess að 3. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Jón Magnússon lögmaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.

Ólafur G. Einarsson,

formaður þingflokks Sjálfstfl.“

Jón Magnússon hefur áður átt sæti á Alþingi og kjörbréf hans því verið rannsakað. Hann er boðinn velkominn til starfa.