07.04.1986
Neðri deild: 73. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3481 í B-deild Alþingistíðinda. (3135)

199. mál, alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó

Frsm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 722 sem fjallar um frv. til laga um breytingar á lögum nr. 7 frá 26. febr. 1975, um heimild fyrir ríkisstj. til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó 1972.

Frv. þetta er komið frá Ed. Þar hlaut það ítarlega athugun. Í þeirri deild voru bornar fram brtt. að því er varðaði fyrst og fremst orðfæri og þýðingu á þessum alþjóðareglum sem voru samþykktar í þeirri deild. Allshn. Nd. hefur kynnt sér frv. og rætt þessi atriði sérstaklega á fundi sínum og leggur til að frv. verði samþykkt í núverandi mynd.