08.04.1986
Sameinað þing: 70. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3533 í B-deild Alþingistíðinda. (3184)
Um þingsköp
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ástæður fyrir því að ég kveð mér hér aftur hljóðs eru fyrst og fremst orð hv. 4. þm. Norðurl. v. í sambandi við umfjöllun um þetta efni á fundi utanrmn. í gær. Ég tók það fram þegar þessi mál voru þar rædd undir lok fundar að ég áskildi mér allan rétt til að taka þessi mál þó ég væri ekki með tillögu á þessari stundu, enda nýbúið að dreifa dönskum tillögutexta á fundi nefndarinnar og málið lítið rætt á þeim vettvangi. Það þarf því ekkert að koma hv. þm. og ágætum formanni utanrmn. á óvart að ég bar fram beiðni um að þessi mál yrðu rædd í þinginu.
Ég vil líka, herra forseti, nefna það að ég tel ekki að menn læsi mál inni gagnvart þinginu þó þau séu til meðferðar á vettvangi utanrmn. og hafi þar sinn eðlilega framgang. Það er að sjálfsögðu á sínum stað og þar hefur mönnum tekist að taka á mikilsverðum málum og stilla saman ólík sjónarmið, oft fyrir ágæta tilstuðlan núverandi formanns nefndarinnar.
En þetta vildi ég sem sagt skýra og ég nefni sem dæmi að hér var rætt um málefni erlendra sendiráða á fyrri fundi Sþ. í dag, málefni sem hefur verið til umræðu á vettvangi utanrmn. og þar sem ráðherra gerir ráð fyrir að greina frekar frá slíku máli. Þannig er um fjölmörg efni að þau berast að sjálfsögðu inn í umræðu í þingsölum þó þau séu til meðferðar í einni af nefndum þingsins.
Ég vænti þess, herra forseti, að umræðan hér um þingsköp verði til þess að treysta undirstöðu og framkvæmd þingskapanna og á það vil ég leggja áherslu að það geti orðið niðurstaðan af þessum orðaskiptum.