05.11.1985
Sameinað þing: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í B-deild Alþingistíðinda. (332)
35. mál, kjötinnflutningur varnarliðsins
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Kjötinnflutningur varnarliðsins hefur alllengi verið deilumál og hafa allar ríkisstjórnir frá því að varnarsáttmálinn var gerður eflaust túlkað hann svo að þessi innflutningur væri heimill. M. a. hafa utanríkisráðherrar Alþfl. gert svo árum saman. Fyrir liggur umsögn eins fyrrverandi hæstaréttardómara sem telur að ef ekki annað þá hafi þessi innflutningur unnið sér hefð. Þessi deila hefur komið upp að nýju og ríkisstj. taldi nauðsynlegt að reyna að fá úr því skorið því að ríkisstj. er ákveðin í að fara að lögum, að sjálfsögðu.
Stéttarsamband bænda samþykkti s.l. vor að fá úr þessu skorið fyrir dómstólum. Þeirra var frumkvæðið að þessu leyti. Um þá samþykkt Stéttarsambandsins var fjallað og ákveðið að hvetja Stéttarsambandið til að fara þá leið eða lýsa yfir við það að það mundi fá gjafsókn ef það kysi að fara þá leið. Stéttarsambandið athugaði síðan nánar þessa leið og komst að þeirri niðurstöðu að hún væri ekki fær. Ég tók því málið upp að nýju því það er nauðsynlegt að fá úr þessum ágreiningi skorið. Og ég ákvað að leita álits lögfræðinga og það hefur verið gert. Þrír lögfræðingar hafa verið beðnir að gefa álit sitt á gildi varnarsáttmálans að þessu leyti. Lögfræðingarnir eru: Arnljótur Björnsson prófessor, dr. Gaukur Jörundsson prófessor og Jóhannes L.L. Helgason hrl.
Það skal tekið fram að fullkomið samkomulag er um það í ríkisstj. að eftir úrskurði þessara manna verði farið. Það hafa utanrrh. og núv. fjmrh. staðfest að eftir þeim úrskurði verði farið í sambandi við innflutning á kjöti til varnarliðsins. Þar til sá úrskurður liggur fyrir standa óbreyttar ákvarðanir fyrrv. hæstv. fjmrh. Ég vil jafnframt taka það fram að fari svo að þessir lögfræðingar telji að ákvæði varnarsáttmálans gildi, þá verða settar mjög strangar reglur um þennan innflutning og þess vandlega gætt að það kjöt fari ekki út af vellinum. Sömuleiðis munu verða hafnar viðræður við varnarliðið um þennan kjötinnflutning og jafnframt um kaup á íslenskum landbúnaðarafurðum öllu fremur en flytja það inn erlendis frá.