05.11.1985
Sameinað þing: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í B-deild Alþingistíðinda. (335)
35. mál, kjötinnflutningur varnarliðsins
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Eins og hv. þm. heyra, þá er skoðanamunur um þetta mál á milli hæstv. fyrrv. fjmrh. og núv. hæstv. utanrrh. Hefur kannske lengi verið skoðanamunur um það innan ríkisstjórna. Úr þessu er ég að reyna að fá skorið og ég tel að sú leið sem nú hefur verið valin, þar sem dómstólaleiðin er ekki talin fær, sé mjög eðlileg. Ríkisstj. vill fá úrskurð um það, hverju lög gera ráð fyrir í þessu sambandi. Ég kalla það ekki hallærislegt. Ég get ómögulega viðurkennt að hallærislegt sé að fá mat viðurkenndra færustu manna á því hvernig túlka beri lög þegar á stangast tvenn lög. Og ég hygg að það hafi verið gert í mjög mörgum tilfellum.
Það kann vel að vera að ríkisstj. síðan ákveði að hún vilji beita sér fyrir breytingu á lögum ef í ljós kemur að úrskurðurinn er á þann veg, en um það er ekki tímabært að taka ákvörðun fyrr en álit löglærðra manna liggur fyrir.