11.04.1986
Neðri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3677 í B-deild Alþingistíðinda. (3368)

336. mál, búnaðarmálasjóður

Páll Pétursson:

Herra forseti. Með vísan til ummæla minna við 2. umr. málsins að hér væri um algjöra bráðabirgðalausn að ræða og með sérstakri áherslu á nauðsyn uppstokkunar sjóðakerfis landbúnaðarins segi ég já.