05.11.1985
Sameinað þing: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í B-deild Alþingistíðinda. (338)

35. mál, kjötinnflutningur varnarliðsins

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu fer ég eftir óskum forseta að vanda. En hæstv. forsrh. gat um að lög stangist hér á. Ég vil leiðrétta þetta. Það er ekki svo að lög stangist á. Varnarsamningurinn víkur ekki til hliðar íslenskum lögum nema sérstaklega sé tekið fram í varnarsamningnum að svo sé. Og í þessu tilfelli er það ekki tekið fram að lög um gin- og klaufaveiki frá 1928 skuli víkja fyrir varnarsamningnum.