15.04.1986
Neðri deild: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3808 í B-deild Alþingistíðinda. (3487)
368. mál, selveiðar við Ísland
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Það væri réttast að fresta afgreiðslu þessa frv. og reyna að ná friði um þetta mál, en þrátt fyrir mikinn ágreining er nú lagt allt kapp á að fá það afgreitt óbreytt. Aðalorsökin er sú að ákveðnir aðilar telja það fela í sér einhverja lausn á hringormavandanum. Það er að mínu viti alrangt. Það er engan veginn sannað að neitt samband sé á milli selafjölda og fjölda hringorma í fiski og meira að segja telja margir okkar færustu vísindamanna sannað að svo sé ekki. Þessi forsenda hvílir því á veikum vísindalegum grunni og auk þess er fáránlegt að skerða svo rétt hlunnindabænda sem gert er í þessu frv. Ég segi nei.